Forsætisráðherra sækir þriðja leik Íslands á EM í knattspyrnu í París
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra sækirþriðja leik Íslands á Evrópumótinu í knattspyrnu karla sem nú fer fram í Frakklandi. Leikurinn verður á Stade de France á miðvikudaginn.
Forsætisráðherra mun einnig í ferð sinni eiga fund með aðstoðarframkvæmdastjóra Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) og sækja franska þingið heim. Þá tekur hann þátt í viðburði á vegum Fransk-íslenska verslunarráðsins á Signubökkum í tengslum við Evrópumótið og heimsækir svokallað Evróputorg. Þar eru landkynningar og ýmsar uppákomur fulltrúa þeirra þjóða sem eiga lið í keppninni.