Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. júní 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samið um að innleiða framleiðslutengda fjármögnun Landspítala

Bjarni Benediktsson, Katrín E Hjörleifsdóttir, Páll Matthíasson og Kristján Þór Júlíusson eftir undirritun samningsins. - mynd

Samningur um innleiðingu framleiðslutengdrar fjármögnunar Landspítala sem byggist á alþjóðlega DRG flokkunarkerfinu var undirritaður í dag. Markmiðið er að tryggja árangursríka heilbrigðisþjónustu og hagkvæma nýtingu fjár.

Helstu markmið með samningnum eru:

  • Gegnsærri aðferðir við fjármögnun þar sem þjónustan er kostnaðargreind.
  • Skynsamlegri úthlutun fjármagns í heilbrigðiskerfinu og betri nýting fjármuna.
  • Aukin skilvirkni og bætt eftirlit með gæðum og hagkvæmni þjónustunnar.
  • Að skilja betur á milli hlutverka kaupanda og seljanda þjónustunnar.
  • Frétt um samninginn á vef velferðarráðuneytis

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum