Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. júlí 2016 Utanríkisráðuneytið

Breytingar á starfsstöðvum í utanríkisþjónustunni

Starfsfólk utanríkisþjónustunnar er flest flutningsskylt. Með reglulegu millibili flyst það á milli starfsstöðva erlendis og ráðuneytisins. Hinn 1. ágúst verða eftirtaldar breytingar á starfsstöðvum sendiherra og aðalræðismanna í samræmi við þessa reglu: 

Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra í París, verður sendiherra í Moskvu. 

Albert Jónsson, sendiherra í Moskvu, kemur til starfa í ráðuneytinu. 

Kristján Andri Stefánsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, verður sendiherra í París. 

Gréta Gunnarsdóttir, sendiherra í ráðuneytinu, verður sendiherra í Vín. 

Auðunn Atlason, sendiherra í Vín, kemur til starfa í ráðuneytinu. 

Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra í Berlín, kemur til starfa í ráðuneytinu.

Martin Eyjólfsson, fastafulltrúi í Genf, verður sendiherra í Berlín. 

Högni S. Kristjánsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, verður fastafulltrúi í Genf. 

Þá lét Hjálmar W. Hannesson sendiherra af störfum sem aðalræðismaður í Winnipeg 1. maí sl. og lét jafnframt af störfum í utanríkisþjónustunni.

Þórður Bjarni Guðjónsson, aðalræðismaður í Þórshöfn, varð aðalræðismaður í Winnipeg, 15. maí sl. 

Pétur G. Thorsteinsson, sendifulltrúi, hóf störf sem aðalræðismaður  í Þórshöfn 15. maí sl.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum