Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. september 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir janúar-júlí 2016

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar - júlí 2016 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Handbært fé frá rekstri batnaði verulega á milli ára og var jákvætt um 19,4 ma.kr. samanborið við neikvætt handbært fé upp á 52,7 ma.kr. 2015. Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjum af stöðuleikaframlögum á árinu 2016 sem námu 68 ma.kr á tímabilinu. Handbært fé lækkar um 96,9 ma.kr. samanborið við lækkun um 85,0 ma.kr. á árinu 2015 sem skýrist að stærstum hluta af afborgunum lána sem námu 125,8 ma.kr. á tímabilinu.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum