Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. september 2016 Utanríkisráðuneytið

Samstarfssamningur sem miðar að útrýmingu hungurs

Lilja og Ertharin Cousin. - mynd

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Ertharin Cousin, framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP), undirrituðu í dag samning um framlög Íslands til verkefna WFP sem miða að því að ná öðru Heimsmarkmiðinu, um útrýmingu hungurs fyrir árið 2030. WFP er áherslustofnun Íslendinga í mannúðarmálum og er samstarfssamningurinn sá fyrsti sem Ísland gerir við stofnunina.

„Með þessum samningi við Matvælaáætlunina erum við að fylgja eftir skuldbindingum Íslands um að veita fyrirsjáanleg og sveigjanleg framlög sem miða að því að bjarga mannslífum og styðja þá sem mest þarfnast mannúðaraðstoðar,” sagði Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra. „Mikilvægast er að ná til þeirra hópa sem standa veikast og að tryggja að jafnrétti kynjanna og réttindi kvenna verði mikilvæg í öllu mannúðarstarfi. Þessi samningur er liður í því," sagði utanríkisráðherra.

„Þegar neyðarástand skapast þá metur WFP það mjög mikils að eiga samstarfsaðila eins og Íslendinga sem gera okkur kleift að bregðast skjótt og vel við neyð allra þeirra milljóna manna sem búa við átök eða náttúruhamfarir,” sagði Ertharin Cousin, framkvæmdastjóri WFP.

Á næstu fimm árum greiðir Ísland á grundvelli samningsins að minnsta kosti 250 milljónir króna (2,2 milljónir bandaríkjadala) í almenn framlög. Samningurinn gerir einnig ráð fyrir eyrnamerktum framlögum í samræmi við áform íslenskra stjórnvalda um beinar greiðslur til viðbótar við almennu framlögin. Einnig snýst samningurinn um fæðuöryggi og næringu bæði í neyðartilvikum og langvinnum kreppum, þar á meðal leiðir sem stuðla að auknum tækifærum til að bæta lífsafkomu fólks. Jafnframt er þar að finna ákvæði um jafnréttismál og ábyrgðarskyldu viðkomandi samfélaga.

WFP hefur frá árinu 2003 notið góðs af viðbragðssamningi við Íslensku friðargæsluna sem hefur ráðið íslenska sérfræðinga til starfa hjá stofnuninni. Með nýja samstarfssamningnum verður viðbragðssamningurinn útvíkkaður til að auka getu WFP til að bregðast við hættuástandi og styrkja aðgerðir í tengslum við matvælaaðstoð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum