Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. október 2016 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð árin2016-2019

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Anna María Karlsdóttir, fyrir hönd Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna (FK) og Óskar Jónasson, fyrir hönd Samtaka kvikmyndaleikstjóra (SKL) undirrituðu þann 27. október í mennta- og menningarmálaráðuneyti samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð árin 2016– 2019.

Í samkomulaginu sem byggt er á skýrslu Kvikmyndaráðs koma fram áherslur á sviði kvikmyndagerðar og kvikmyndamenningar á Íslandi er varða þróun styrkjakerfis á sviði kvikmyndamála. Auka á fjármagn í Kvikmyndasjóð og auka hlutfall framleiðslustyrks úr Kvikmyndasjóði af heildarframleiðslukostnaði einstakra verkefna og efla aðrar greinar kvikmyndagerðar s.s. gerð heimildamynda, stuttmynda og leikinna sjónvarpsmynda.

Tryggja á jafnan hlut karla og kvenna í styrkveitingum Kvikmyndasjóðs m.a. með því að veita tímabundið sérstaka handrita-, þróunar- og framleiðslustyrki til kvenna jafnframt því að jafna hlut kynjanna í öðrum listrænum stöðum í kvikmyndagerð. Einnig er sett það markmið að styðja sérstaklega við konur og karla sem eru að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð. Í samkomulaginu er einnig lögð áhersla á barnaefni og það verði kappkostað að a.m.k. eitt slíkt verkefni verði framleitt árlega.

Samkomulagið felur í sér að stuðningur við kvikmyndagerð á Íslandi í gegnum Kvikmyndasjóð eykst úr 844,7 millj. kr. á yfirstandandi ári í 1.084,7 millj. kr. árið 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum