Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. nóvember 2016 Forsætisráðuneytið

Staðgengill forsætisráðherra á Norðurlandaráðsþingi og tengdum ráðherrafundum

Norðurlandaráðsþing 2016 - mynd

Eygló Harðardóttir,  félags- og húsnæðismálaráðherra, samstarfsráðherra Norðurlanda og staðgengill forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs, tók í gær og í dag þátt í störfum Norðurlandaráðsþings í Kaupmannahöfn. 

Flutti ráðherra meðal annars ræðu um vinnu Íslands við framkvæmd Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og tók þátt í umræðum á þinginu.  

Þá funduðu forsætisráðherrar Norðurlanda með forsætisnefnd Norðurlandaráðs og fjölluðu m.a. um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og framkvæmd Norðurlanda. 

Á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna var m.a. til umræðu umbylting í stafrænni tækni, umhverfis og loftslagsmál og þá sérstaklega umbreyting orkugjafa í samgöngum. 

Forsætisráðherrar Norðurlandanna funduðu einnig með leiðtogum Grænlands, Færeyja og Álandseyja. Fjallað var um formennskuáætlun  Noregs í samstarfi Norðurlandanna á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2017, stjórnsýsluhindranir, norrænt samstarf er varðar Evrópusambands- og alþjóðamál og sameiginlegar landkynningar Norðurlandanna. 

Þá funduðu forsætisráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þar sem rætt var um samstarf þessara ríkja , umhverfis og loftslagsmál og öryggis- og varnarmál. Rætt var um eftirfylgni leiðtogafundar NATO, sem haldinn var í Varsjá sl. sumar, stöðu mála í Sýrlandi og Úkraínu og ákvörðun Bretlands um að segja sig úr Evrópusambandinu. 

Norðurlandaráðsþing 2016

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum