Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. desember 2016 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Drög að reglugerð um umhverfismerki í kynningu

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um umhverfismerki. Reglugerðin gildir um norræna umhverfismerkið, Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins, Blómið og kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.

Norræna umhverfismerkisnefndin gefur út reglur um umhverfisvottun Svansins og endurspegla drög þessi norrænu reglurnar. Skyldur umsækjenda um leyfi til að nota umhverfismerki eru gerðar skýrari en helstu breytingar varða meginreglur um veitingu og notkun Svansins, meðferð umsókna og notkunarskilmála. Þá lúta breytingarnar að skyldum leyfishafa, svo sem að tryggja að allar umhverfismerktar vörur uppfylli viðmið umhverfismerkisins á gildistíma leyfis og varðveislu gagna er varða leyfið.

Frestur til að skila umsögnum um reglugerðardrögin er til 21. desember nk. og má senda þær á netfangið [email protected] eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Drög að reglugerð um umhverfismerki (word-skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum