Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. desember 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Undirbúningur að gerð landsskýrslu um innleiðingu Árósasamningsins

Merki Árósasamningsins

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið undirbýr nú gerð annarrar skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi. Skýrslan verður unnin í samráði við umhverfisverndarsamtök og tekur ráðuneytið einnig við öllum ábendingum frá almenningi um efni hennar.

Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Auk aðildarríkjaráðstefnu á þriggja ára fresti og ríkjafunda sem haldnir eru árlega eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð. Þá er rekin sérstök nefnd um framfylgni (Compliance Committee) sem fylgist með framkvæmd samningsins í aðildarríkjum hans.

Á þriggja ára fresti ber aðildarríkjum að skila aðildarríkjaskýrslu til skrifstofu samningsins þar sem farið er yfir stöðu innleiðingar ákvæða samningsins í viðkomandi ríki. Síðast skiluðu aðildarríkin skýrslu árið 2014 og var Ísland þar á meðal. Í ársbyrjun 2017 eiga aðildarríkin að skila skýrslu að nýju og verða þær til umræðu á aðildarríkjaráðstefnu samningsins á næsta ári.

Þar sem Árósasamningurinn fjallar um þátttökuréttindi almennings er eðli málsins samkvæmt áhersla lögð á að stjórnvöld hafi samráð við almenning og samtök hans við gerð skýrslunnar. Mikilvægt er að öll sjónarmið komi fram, bæði sjónarmið stjórnvalda, almennings og félagasamtaka sem nýta sér þann rétt sem aðild að samningnum veitir.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið vill vekja athygli á því að unnið er að undirbúningi skýrslu Íslands sem skilað verður á næsta ári. Á næstunni verða birt á vef ráðuneytisins drög að skýrslunni til kynningar og athugasemda en auk þess mun ráðuneytið eiga sérstakt samráð við umhverfisverndarsamtök um efni hennar. Þá vill ráðuneytið hvetja alla þá sem áhuga hafa til að koma með ábendingar eða annað sem varðar væntanlega skýrslu og senda þær á netfangið [email protected]Tekið verður við ábendingum og athugasemdum til og með 18. janúar 2017.

Nánari upplýsingar veitir Laufey Helga Guðmundsdóttir, [email protected].

Fyrsta landsskýrsla Íslands um innleiðingu Árósarsamningsins(pdf-skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum