Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. desember 2016 Forsætisráðuneytið

666/2016. Úrskurður frá 30. desember 2016

Úrskurður

Hinn 30. desember 2016 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 666/2016 í máli ÚNU 16080005.

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 3. ágúst 2016, kærði A afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni hans frá 10. febrúar 2016 um að fá afhent afrit af ráðningarsamningi sveitarfélagsins við framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Kæran varðaði afgreiðslutöf á beiðni kæranda en undir rekstri málsins fyrir úrskurðarnefndinni kom fram af hálfu sveitarfélagsins að beiðni kæranda hafi verið synjað. Synjun sveitarfélagsins var byggð á 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.

Málsmeðferð

Þann 15. ágúst 2016 var kæran send Vestmannaeyjabæ og sveitarfélaginu veittur kostur á að gera athugasemdir við hana. Úrskurðarnefndin óskaði jafnframt eftir því að henni yrðu látin í té afrit af umbeðnum gögnum í trúnaði. Í umsögn Vestmannaeyjabæjar, dags. 26. október 2016, kom fram að Vestmannaeyjabær geti ekki orðið við erindi kæranda vegna þess að viðkomandi starfsmaður hafi ekki veitt heimild til þess að samningurinn yrði gerð opinber. Sveitarfélagið tók fram að í samningnum sé að finna persónulegar upplýsingar, t.d. upplýsingar um bankareikninga, lífeyrissjóð o.s.frv.

Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að ráðningarsamningi sveitarfélagsins við framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Sveitarfélagið byggir synjunina á 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 um upplýsingar um málefni starfsmanna. Í 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 kemur fram:

„Réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lög þessi taka til skv. 2. gr. tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.“

Í 2. mgr. 7. gr. er að finna undantekningar frá þessari reglu. Þar segir að þegar aðrar takmarkanir á upplýsingarétti samkvæmt lögunum eigi ekki við, sé þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skylt að veita upplýsingar um eftirtalin atriði sem varða opinbera starfsmenn:

  1. nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf, þegar umsóknarfrestur er liðinn,

  2. nöfn starfsmanna og starfssvið,

  3. föst launakjör annarra starfsmanna en æðstu stjórnenda,

  4. launakjör æðstu stjórnenda,

  5. áherslur og kröfur um árangur í starfi æðstu stjórnenda sem fram koma í ráðningarsamningi eða öðrum gögnum og upplýsingar um menntun þeirra.

Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til upplýsingalaga segir að með föstum launakjörum sé m.a. átt við ráðningarsamninga og aðrar ákvarðanir eða samninga sem kunna að liggja fyrir um föst laun starfsmanna. Undanþágur frá hinni almennu reglu, um að almenningur eigi ekki rétt til aðgangs að gögnum í málum er varða umsóknir í starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti sbr. 1. mgr. 7. gr., byggjast á þeirri forsendu að þrátt fyrir að upplýsingar um starfssamband geti talist til einkamálefna starfsmanns, fela ýmsir samningar stjórnsýslunnar við starfsmenn sína í sér ráðstöfun opinberra hagsmuna. Það er því mat úrskurðarnefndar um upplýsingamál að synjun á aðgangi kæranda að umbeðnum ráðningarsamningi verði ekki reist á 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.

Hin kærða ákvörðun er að öðru leyti byggð á því að ráðningarsamningurinn innihaldi viðkvæmar persónuupplýsingar. Þá sé uppi ágreiningur um gildissvið persónuverndarlaga gagnvart upplýsingalögum. Um síðarnefnda álitaefnið tekur nefndin fram að í 2. mgr. 44. gr. persónuverndarlaga nr. 77/2000 kemur fram að lögin takmarki ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum og stjórnsýslulögum.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur farið yfir ráðningarsamning Vestmannaeyjabæjar við framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs bæjarins, sem var undirritaður þann 13. mars 2008. Þar koma meðal annars fram upplýsingar um aðild starfsmannsins að lífeyrissjóði og bankaupplýsingar hans. Í 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 segir að óheimilt sé að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Í athugasemdum við 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 í frumvarpi til laganna segir að engum vafa sé undirorpið að þar undir falli viðkvæmar persónuupplýsingar samkvæmt lögum um persónuvernd nr. 77/2000. Hugtakið viðkvæmar persónuupplýsingar er skilgreint í 8. tölul. 2. gr. þeirra laga og þar eru meðal annars taldar upp upplýsingar um stéttarfélagsaðild. Þá verður að telja bankaupplýsingar og upplýsingar um lífeyrissjóðsaðild starfsmannsins til einka- og fjárhagsmálefna hans sem sanngjarnt og eðlilegt er að leynt fari.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að veita beri kæranda aðgang að hinum umbeðna ráðningarsamningi. Áður ber að afmá upplýsingar um einka- og fjárhagsmálefni starfsmannsins eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurðarorð:

Vestmanneyjabær ber að veita kæranda, A, aðgang að ráðningarsamningi sveitarfélagsins við framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdarsviðs, dags. 13. mars 2008. Áður skal afmá úr samningnum bankaupplýsingar starfsmannsins og upplýsingar um aðild hans að lífeyrissjóði.

Hafsteinn Þór Hauksson

formaður

Sigurveig Jónsdóttir Friðgeir Björnsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum