Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. janúar 2017 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nefnd skipuð til að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla

Nefndin er skipuð í framhaldi af því að fulltrúar einkarekinna fjölmiðla hafa vakið athygli stjórnvalda á erfiðleikum sem blasa við í rekstri þeirra

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um breytingar á lögum og / eða aðrar nauðsynlegar aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi og tryggja að hér á landi fái þrifist fjölbreyttur markaður frjálsra fjölmiðla með með tilliti til mikilvægs hlutverks þeirra fyrir lýðræðisþróun og samfélagsumræðu.

Nefndin er skipuð í framhaldi af því að fulltrúar einkarekinna fjölmiðla hafa vakið athygli stjórnvalda á erfiðleikum sem blasa við í rekstri þeirra og má rekja til ýmissa utanaðkomandi aðstæðna og skorað á stjórnvöld að gera „nauðsynlegar, málefnalegar og tímabærar breytingar á íslenskri löggjöf til þess að jafna samkeppnisstöðu félaga á íslenskum fjölmiðlamarkaði“.

Nefndin er þannig skipuð:

Björgvin Guðmundsson, formaður, skipaður án tilnefningar,
Elfa Ýr Gylfadóttir, skipuð án tilnefningar,
Hlynur Ingason tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðherra,
Soffía Haraldsdóttir, skipuð án tilnefningar,
Svanbjörn Thoroddssen sérfræðingur hjá KPMG, skipaður án tilnefningar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum