Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. janúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu tekur gildi 1. maí

Í læknisskoðun
Í læknisskoðun

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta innleiðingu á nýju greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu til 1. maí næstkomandi. Ákvörðunin byggist á því að meiri tíma þurfi til að undirbúa kerfisbreytinguna, fyrst og fremst vegna ýmissa tæknilegra örðugleika við útfærslu hennar.

Alþingi samþykkti 2. júní sl. breytingu á lögum um sjúkratryggingar þar sem kveðið var á um grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi á greiðslum sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu. Lögin öðlast gildi 1. febrúar nk.

Samkvæmt nýju greiðsluþátttökukerfi verður tryggt að mánaðarlegar greiðslur fólks fyrir heilbrigðisþjónustu fari aldrei yfir tiltekið hámark og að þar með verði jafnframt sett þak á árleg heildarútgjöld fólks fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem fellur undir nýja greiðsluþátttökukerfið. Undir nýja kerfið fellur þjónusta heilsugæslu, sjúkrahúsa, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna, rannsóknir og geisla- og myndgreining.

Velferðarráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands hafa á liðnum mánuðum undirbúið gildistöku laganna og innleiðingu á nýju greiðsluþátttökukerfi með það að markmiði að kerfið tæki gildi 1. febrúar. Í desember sl. óskaði ráðuneytið eftir umsögnum um drög að reglugerðum sem lúta að innleiðingu nýja greiðsluþátttökukerfisins, þ.e. reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu og reglugerð um tilvísanir fyrir börn. Fram hefur komið af hálfu Sjúkratrygginga Íslands að lengri tíma þurfi til að innleiða reglugerð um tilvísanir fyrir börn en áætlað var vegna vinnu við forritun og kynningu á kerfinu. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og fleiri aðilar hafa einnig lýst áhyggjum yfir naumum tíma til innleiðingar þessara kerfisbreytinga, meðal annars vegna nauðsynlegra hugbúnaðabreytinga, tenginga á kerfum milli stofnana og vegna viðeigandi villuprófana á kerfinu áður en það verður tekið í notkun.

Með hliðsjón af framkomnum athugasemdum hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að fresta innleiðingu greiðsluþátttökukerfisins til 1. maí 2017. Stefnt er að því að reglugerðir um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu og um tilvísanir fyrir börn verði settar fyrir lok þessa mánaðar og taki gildi 1. maí 2017.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum