Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. janúar 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

S&P hækkar lánshæfismat ríkissjóðs í A flokk

Matsfyrirtækið Standard & Poor´s hækkaði í dag lánshæfismat fyrir ríkissjóð í A- úr BBB+, horfur eru metnar stöðugar. Meginástæða hækkunarinnar er sterkari ytri staða.

Í frétt matsfyrirtækisins kemur fram að sterk erlend staða Íslands er einn af lykilþáttunum í hækkun lánshæfismatsins. Mikill afgangur hefur verið af viðskiptajöfnuði og óskuldsettur hluti gjaldeyrisforðans hefur vaxið verulega síðasta árið. Greiðslujöfnuður Íslands hefur farið fram úr væntingum S&P. Þá vega mikill hagvöxtur, lækkun skuldahlutfalls og sterk staða ríkisfjármála, einnig þungt í hækkun matsins. Einnig bendir lánshæfisfyrirtækið á að Ísland er með háar þjóðartekjur á mann.

S&P gæti hækkað lánshæfismat ríkissjóðs frekar ef fjármagnshöft verða losuð að fullu án þess að fjármálalegum stöðugleika verði ógnað eða hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð. Lánshæfismatið gæti einnig hækkað frekar ef skuldahlutfall hins opinbera lækkar hraðar en gert er ráð fyrir í mati S&P.

Lánshæfismatið gæti lækkað ef nýlegar launahækkanir leiða til ofhitnunar hagkerfisins sem hafa myndi aukna áhættu í för með sér fyrir peninga- og ríkisfjármál og erlenda stöðu þjóðarbúsins. Að sama skapi gæti frekari losun fjármagnshafta með óskipulegum hætti sem hefði neikvæð áhrif á fjármálakerfið, haft áhrif til lækkunar.

Fyrirtækið hækkaði síðast lánshæfismat ríkissjóðs í janúar 2016. Ríkissjóður er nú metinn í A flokki hjá bæði Moody´s og S&P, en ríkissjóður var síðast metinn í A flokki hjá S&P í október 2008.

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum