Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. janúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Ný hjúkrunardeild við Lund á Hellu tekin í notkun

F.v. Egill Sigurðsson – oddviti Ásahrepps, Trausti Runólfsson – íbúi á Lundi, Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir – hjúkrunarforstjóri Lundi, Óttarr Proppé – heilbrigðisráðherra, Drífa Hjartardóttir – stjórnarformaður Lundar, Þóra Þorsteinsdóttir – íbúi á Lundi og Ágúst Sigurðsson – sveitarstjóri Rangárþings ytra. - mynd

Átta vel búnar hjúkrunaríbúðir eru í nýrri hjúkrunardeild við Lund á Hellu sem var formlega tekin í notkun síðastliðinn föstudag. Með tilkomu hennar eiga nú allir íbúar hjúkrunarheimilisins kost á einbýli. Deildin er hönnuð með þarfir heilabilaðra að leiðarljósi.

Skipulag deildarinnar byggist á viðmiðum velferðarráðuneytisins um hjúkrunarheimili þar sem áhersla er lögð á fámennar hjúkrunareiningar og heimilislegar aðstæður.  

„Hér hefur verið framkvæmt af metnaði – og við eigum líka að sýna metnað til þess að búa vel að öldruðum í samfélaginu, veita þeim góða þjónustu og stuðning sem þess þurfa með og mæta ólíkum þörfum fólks af skilningi og virðingu“ sagði Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra í stuttu ávarpi við vígslu hjúkrunardeildarinnar og óskaði heimamönnum til hamingju með ánægjulegan áfanga í uppbyggingu öldrunarþjónustu á Suðurlandi.

Ráðherra vísaði í samstarfsyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar þar sem fram kemur að aukinn þungi verði settur í uppbyggingu öldrunarþjónustu með sérstakri áherslu á heimahjúkrun og hjúkrunarheimili, fjölgun dagþjálfunarrýma og styttri bið eftir þjónustu:. „Það er mikil þörf á því að efla þessa þjónustuþætti og sú þörf eykst samhliða fjölgun aldraðra“ sagði Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum