Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. febrúar 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nám í alþjóðlegum menntaskóla í Noregi

Einstakt tækifæri á námi til stúdentsprófs í alþjóðlegu umhverfi. Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlega menntaskólann, Red Cross Nordic United World College (RCNUWC) í Flekke, Noregi.

Nám í alþjóðlegum menntaskóla í Noregi
Einstakt tækifæri á námi til stúdentsprófs í alþjóðlegu umhverfi

Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlega menntaskólann, Red Cross Nordic United World College (RCNUWC) í Flekke, Noregi.  Skólinn er hluti af alþjóðlegu skólasamtökunum United World Colleges (UWC), sem reka 16 skóla í 16 löndum.  UWC er í fararbroddi alþjóðlegrar menntunar til stúdentsprófs, með það að markmiði að menntun ungmenna með ólíkan menningarbakgrunn styrki stoðir skilnings á milli þjóða og menningarheima. Nám við skólann í Noregi tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku. Skólastarf við RCNUWC leggur áherslu á að nemendur kynnist málefnum og viðfangsefnum  samtímans, og eru sérstakar áherslur hans á umhverfis-, samfélags og mannréttindamálefni. Skólinn á í samstarfi við Rauða Krossinn og Norðurlöndin, sem eiga aðild að stofnun hans.

Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans:  uwcrcn.no og á Facebook síðunni UWC Ísland

Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2017-2018. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-18 ára. Væntanlegur nemandi þarf sjálfur að greiða fargjöld.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum