Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. febrúar 2017 Heilbrigðisráðuneytið

Tryggt verði fjármagn til innleiðingar nýrra lyfja

Lyf
Lyf

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag tillögu um að fela fjármála- og efnahagsráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að tryggja aukið fjármagn til lyfjamála til innleiðingar nýrra lyfja á þessu ári.

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra fundaði 19. janúar sl. með formanni lyfjagreiðslunefndar, forstjóra Landspítala og fulltrúa Sjúkratrygginga Íslands þar sem þessir aðilar bentu á að lyfjamálum væri þröngur stakkur skorinn í fjárlögum ársins og að þau gæfu ekkert svigrúm til innleiðingar nýrra lyfja, hvorki S-merktra lyfja né almennra lyfja.

Í minnisblaði heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnarinnar kemur fram að miðað við fjárheimildir þessa árs vanti töluverða fjármuni til lyfjamála m.a. varðandi innleiðingu nýrra lyfja. Á grundvelli þessa samþykkti ríkisstjórnin að fela fjármála- og efnahagsráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að tryggja aukið fé til málaflokksins og verður verkefni þeirra m.a. að leggja mat á fjárþörfina og umfang vandans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum