Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. febrúar 2017 Utanríkisráðuneytið

Samningur WTO um viðskiptaliprun tekur gildi

Viðskiptaliprunarsamningur Alþjóða viðskiptastofnunarinnar (WTO) tók formlega gildi í gær þegar fjögur ríki; Rúanda, Óman, Chad og Jórdanía, staðfestu fullgildingu ríkjanna á samningnum. Þar með hafa 2/3 af 164 aðildarríkjum stofnunarinnar fullgilt samninginn. Um sögulegan viðburð er að ræða þar sem um er að ræða fyrsta marghliða samninginn sem samkomulag hefur náðst um frá stofnun Alþjóða viðskiptastofnunarinnar árið 1995.

Samningurinn inniheldur ákvæði er varða hraðari og skilvirkari tollframkvæmd. Auknum hraða og bættri skilvirkni skal ná með árangursríkri samvinnu milli tollyfirvalda og annarra viðeigandi yfirvalda varðandi málefni tengd viðskiptaliprun og framfylgd tollalöggjafar. Þá felur hann í sér ákvæði er varða tæknilega aðstoð og þekkingaruppbyggingu á þessu sviði. Samkvæmt upplýsingum frá WTO er áætlað að full framkvæmd samningsins ætti að lækka heildar-viðskiptakostnað aðildarríkjanna um 14,3% að meðaltali og að þróunarríki ættu jafnvel að geta náð enn betri árangri.

Frétt WTO

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum