Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. febrúar 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Merki Kvískerjasjóðs
Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2017. Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

Umsóknum skal fylgja:

  • Greinagóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  • Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins.
  • Upplýsingar um helstu samstarfsaðila.
  • Fjárhagsáætlun verkefnisins þar sem fram kemur framlag samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.

Umsóknarfrestur er til 24. mars nk. og skal umsóknum skilað á rafrænu formi til formanns sjóðsstjórnar, Sigurlaugar Gissurardóttur, Brunnhóli á Mýrum, 781 Hornafirði, merktar Kvískerjasjóður, á netfangið: [email protected].

Tilkynnt verður um styrkveitingar fyrir lok apríl og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma: 478 1029 eða á netfangi: [email protected]

Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum