Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. mars 2017 Forsætisráðuneytið

Nýjarreglur um starfshætti ríkisstjórnar

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun nýjar reglur um starfshætti ríkisstjórnar. Reglurnar fela í sér veigamiklar breytingar á eldri reglum um sama efni, en markmiðið með breytingunum er að stórefla efnislegan undirbúning fyrir ríkisstjórnarfundi með auknu samráði og samhæfingu á milli ráðherra. 

Helstu breytingar fela í sér að ríkisstjórnarfundir verða haldnir að jafnaði einu sinni í viku, á föstudögum, en ekki tvisvar eins og verið hefur. Þá verður undirbúningi funda hagað með þeim hætti að ráðherrar hafi tök á að kynna sér mál, sem lögð eru fram af hálfu annarra ráðherra í ríkisstjórn, með lengri fyrirvara en áður. Gert er ráð fyrir að nýjar reglur komi til framkvæmda mánudaginn 13. mars næstkomandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum