Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. mars 2017 Forsætisráðuneytið

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 2017- forsætisráðherra tekur þátt í viðburðum hjá Sameinuðu þjóðunum í New York – HeForShe

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og einn tíu málsvara HeForShe átaks UN Women úr hópi þjóðarleiðtoga tók í dag þátt í viðburðum á vegum UN Women í New York. 

HeForShe listaviku var formlega hleypt af stokkunum í Lincoln Center, með samtali forsætisráðherra, leikarans og góðgerðarsendiherrans Edgars Ramirez og leikstjórans Oskars Eustis um jafnréttismál og listir. Forsætisráðherra lagði í máli sínu áherslu á launajafnrétti og mikilvægi þess að brjóta niður staðalímyndir og að virkja karla í jafnréttisbaráttunni.  Þá hafði hann skreytt HeForShe-köku í tilefni dagsins sem hann afhenti Phumzile, framkvæmdastýru UN Women.

Síðar um morguninn flutti forsætisráðherra ávarp á sérstökum hátíðarfundi SÞ í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Þar voru einnig á meðal þátttakenda forseti allsherjarþings SÞ, varaframkvæmdastjóri SÞ, og framkvæmdastýra UN Women, ásamt leikkonunni Anne Hathaway góðgerðarsendiherra UN Women sem kynnti baráttumál sitt;  launað fæðingarorlof fyrir mæður og feður, en hún dró sérstaklega fram að Bandaríkin eru eftirbátur vestrænna þjóða þegar kemur að því að tryggja réttindi foreldra í fæðingarorlofi. Forsætisráðherra kynnti og afhenti svokallað Barbershop Toolbox, en Ísland skuldbatt sig gagnvart HeForShe til að þróa slíka verkfærakistu til að hjálpa öðrum að skipuleggja jafnréttisviðburði sem nái til karla og drengja. Auk þess að ræða mikilvægi þess að brjóta niður staðalímyndir og að virkja karla í jafnréttisbaráttunni, lagði forsætisráðherra áherslu á launajafnrétti kynjanna og mikilvægi jafnlaunastaðalsins í þeim aðgerðum. Þá  fjallaði hann um þann góða árangur sem náðst hefur á Íslandi í jafnréttismálum en lagði áherslu á að verkinu væri hins vegar hvergi nærri lokið. Hann vék sérstaklega að mikilvægi kvennahreyfingarinnar á Íslandi í jafnréttisbaráttunni, framboði Kvennalistans og kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands á sínum tíma og þeim innblæstri sem kjör hennar var.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum