Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. mars 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Starfshópur skoðar erlenda löggjöf um aðskilnað eða takmörkun á viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem fær það verkefni að skoða erlenda löggjöf um aðskilnað eða takmörkun á viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi, leggja mat á kosti og galla slíkrar löggjafar fyrir fjármálamarkað hér á landi og einnig að skoða hvort aðrar leiðir séu færar eða betur til þess fallnar að takmarka áhættu af fjárfestingarbankastarfsemi alhliða banka.

Hópurinn á að að skila niðurstöðum í formi skýrslu til ráðherra í maí nk. og leggur ráðherra skýrsluna fram á Alþingi.

Starfshópinn skipa:

  • Leifur Arnkell Skarphéðinsson, frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, formaður hópsins
  • Björk Sigurgísladóttir frá Fjármálaeftirlitinu
  • Fjóla Agnarsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Jónas Þórðarson frá Seðlabanka Íslands,
  • Jón Þór Sturluson frá Fjármálaeftirlitinu
  • Sigríður Logadóttir frá Seðlabanka Íslands

Til upplýsinga um málið er meðfylgjandi áfangaskýrsla starfshóps sem skipaður var um svipað verkefni á síðasta kjörtímabili. Sá starfshópur náði ekki að ljúka störfum á tilsettum tíma en skilaði áfangaskýrslu til ráðherra 22.september 2016. Í 7. hluta áfangaskýrslunar er fjallað um takmörkun á áhættu af fjárfestingarbankastarfsemi hjá alhliða bönkum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum