Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. apríl 2017 Forsætisráðuneytið

Aðhald, ábyrgð og efnahagsstjórn – 2. fundur Þjóðhagsráðs

Þjóðhagsráð kom til fundar í dag til að fjalla um stöðu  efnahagsmála og samspil  opinberra fjármála við peningastefnu og kjaramál.  Í ráðinu eiga nú sæti forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, Seðlabankastjóri, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Á fundinum var rætt um meginlínur í opinberum fjármálum til næstu fimm ára, stöðu vinnu við nýtt vinnumarkaðslíkan, kjarasamninga á árinu og árangur og áskoranir peningastefnunnar. Fundargerð af þessum fundi verður aðgengileg eins fljótt og unnt er. 

Meðfylgjandi er efni sem kynnt var á fundinum frá fjármála- og efnahagsráðherra og Seðlabankastjóra  auk greinargerðar sem Hallgrímur Snorrason, fyrrum hagstofustjóri, tók saman um launatölfræði í Noregi og á Íslandi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum