Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. apríl 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar skipuð

Merki rammaáætlunar

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn 4. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar. Verkefnisstjórnin er ráðherra til ráðgjafar við undirbúning að gerð tillagna fyrir rammaáætlun.

Samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun er verkefnisstjórnin skipuð til fjögurra ára í senn og hefur verkefnisstjórn 3. áfanga lokið störfum. 

Skal verkefnisstjórn að fengnum niðurstöðum faghópa, samráði við haghafa og umsögnum almennings vinna drög að rökstuddum tillögum til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun verndar- og virkjunarsvæða. Lögunum er ætlað að tryggja að nýting landsvæða þar sem möguleikar eru á orkuvinnslu byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Verkefnisstjórnin fjallar um virkjunarhugmyndir og landsvæði í samræmi við beiðnir þar um og getur einnig endurmetið virkjunarhugmyndir og landsvæði gildandi áætlunar. Á vegum verkefnisstjórnar starfa faghópar með sérfræðingum á viðeigandi sviðum sem fara yfir þessi svæði en niðurstöður faghópanna liggja til grundvallar tillagna verkefnisstjórnar til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða.

Ráðuneytið leggur áherslu á að í byrjun starfsins taki verkefnisstjórn saman og kynni þá aðferðafræði sem hún hyggist beita í 4. áfanga. Þar verði sérstaklega höfð til hliðsjónar reynsla af fyrri áföngum í vinnu verkefnisstjórnar. Lögð er sérstök áhersla á að verkefnisstjórnin starfi með þeim hætti að tryggt sé að almenningur hafi virka aðkomu og félagasamtök taki þátt í öllu starfi í tengslum við rammaáætlun.

Verkefnisstjórn er ætlað að skila tillögum sínum til ráðherra innan fjögurra ára. Hún er skipuð sex fulltrúum og jafn mörgum til vara:

Skipuð án tilnefningar:

  • Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða, formaður,
  • Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, varamaður formanns,
  • Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor, aðalfulltrúi,
  • Jórunn Harðardóttir, framkvæmdastjóri úrvinnslu- og rannsóknasviðs Veðurstofu Íslands, til vara.

Tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti:

  • Guðrún A. Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar HR, aðalfulltrúi,
  • Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, til vara
  • Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af atvinnu- og nýsköpunarráðherra, aðalfulltrúi,
  • Laufey Jóhannsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, til vara.

 Tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti:

  • Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri hjá Akureyrarstofu, aðalfulltrúi,
  • Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, til vara.

Tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga:

  • Elín R. Líndal, sveitarstjórnarfulltrúi í Húnaþingi vestra, aðalfulltrúi,
  • Guðjón Bragason, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, til vara.

Starfsmaður verkefnisstjórnarinnar er Herdís Helga Schopka, sérfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum