Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. apríl 2017 Utanríkisráðuneytið

Bretar og Íslendingar samstíga í fríverslunarmálum

Guðlaugur Þór ásamt Greg Hands fyrir utan breska þingið - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur í gær og í dag átt fundi í London með ráðherrum í ráðuneyti sem fer með úrsögn Breta úr ESB (DExEU), og breska utanríkisviðskiptaráðuneytinu (DIT) þar sem sameiginleg úrlausnarefni vegna úrsagnar Breta úr ESB og framtíðarfyrirkomulag viðskipta landanna  voru til umræðu. Á fundi utanríkisráðherra með David Jones, ráðherra í DExEU, kom fram ríkur vilji til að styrkja enn frekar traust viðskiptatengsl þessara nágrannaríkja í kjölfar Brexit. Ráðherrarnir voru sammála um að efla þegar samráð ríkjanna í viðskiptamálum, einnig í málaflokkum á borð við sjávarútvegsmál og umhverfis- og orkumál. Á fundinum kom fram að allar forsendur væru til staðar svo ná mætti skjótum árangri við að semja um framtíðarfyrirkomulag viðskipta eftir að Bretar hafi gengið formlega úr ESB.

Á fundi utanríkisráðherra með Greg Hands, ráðherra í utanríkisviðskiptaráðuneytinu, kom jafnframt fram mikill vilji til samráðs við Ísland fram að formlegri útgöngu svo undirbúa megi jarðveginn fyrir framtíðarviðræður landanna. „Það er í raun ómögulegt að hugsa til þess að nýjar viðskiptahindranir kunni að rísa milli Evrópuríkja að tveimur til þremur árum liðnum. Slíkt væri úr takti við þróun viðskipta í Evrópu og fríverslunar í heiminum og á fundum mínum í London hefur komið skýrt fram að Bretar og Íslendingar horfa eins á hlutina og vilja vera í fararbroddi þegar kemur að alþjóðlegri fríverslun,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.

Utanríkisráðherra hitti einnig Hillary Benn, þingmann Verkamannaflokksins og formann Brexit-nefndar neðri deildar breska þingsins, þar sem útgöngumálin voru rædd sem og möguleikar á frekara samstarfi ríkjanna tveggja í sameiginlegum hagsmunamálum. Þá átti Guðlaugur Þór fund með Angus MacNeil, þingmann úr skoska þjóðarflokknum og formanni utanríkisviðskiptanefndar neðri deildar breska þingsins, sem fyrir skömmu birti skýrslu sína um möguleika Breta á fyrirkomulagi fríverslunar eftir útgönguna úr ESB. Í skýrslu þingnefndarinnar er lagt til að Bretar íhugi alvarlega þann möguleika að gerast aðilar að EFTA á ný. „Þetta voru afar áhugaverðir fundir og jafnvel þótt aðild Breta að EFTA sé einungis ein af mögulegum leiðum sem Bretar hafa haft til skoðunar er ljóst að reynsla og árangur okkar EFTA-ríkjanna af alþjóðlegri fríverslun vekur mikla athygli,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum