Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. maí 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum ýtt úr vör

Sex ráðherrar undirrituðu samstarfsyfirlýsinguna. - mynd

Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skrifuðu í dag undir samstarfsyfirlýsingu um gerð aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem liggja skal fyrir í lok ársins.

Markmið áætlunarinnar er að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar skv. Parísarsamningnum í loftslagsmálum til 2030 með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu koldíoxíðs úr andrúmslofti. Sérstök verkefnisstjórn og sex faghópar vinna áætlunina, en settur verður upp samráðsvettvangur þar sem fulltrúum haghafa og stjórnarandstöðu verður boðið að taka sæti. Áhersla verður lögð á samráð við haghafa og að sjónarmið og tillögur komi frá aðilum utan stjórnkerfisins.

Auk Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og Bjartar Ólafsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra undirrita samstarfsyfirlýsinguna Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra, Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Í samstarfsyfirlýsingunni segir m.a.: „Til að Ísland nái að standast metnaðarfull markmið Parísarsamningsins er ljóst að samfélagið allt þarf að taka fullan þátt. Það þarf að tryggja langtímasýn og -árangur í minni auðlindasóun og uppbyggingu og þróun lágkolefnishagkerfis. Það kallar á samstillt átak innan stjórnkerfisins og samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs, félagasamtaka og síðast en ekki síst almennings. Því ætlar ríkisstjórnin að hrinda af stað gerð nýrrar aðgerðaáætlunar til að draga úr losun og auka kolefnisbindingu. Áætlunin á að miða að því að Ísland standi við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum til 2030 og varða veginn að róttækri minnkun losunar til lengri tíma í samræmi við leiðsögn fræðasamfélagsins um hvernig hægt sé að ná markmiðum um að halda hlýnun andrúmsloftsins vel innan við 2°C.“

Í lok yfirlýsingarinnar segja ráðherrarnir: „Það er trú okkar að heildstæð framtíðarsýn og vel útfærðar aðgerðir sem miða að því að draga úr losun með aðkomu sem flestra landsmanna verði til þess að varða leiðina til loftslagsvænni framtíðar og styrkja græna ímynd Íslands. Við munum leggja okkar af mörkum til að svo megi verða.“

Samstarfsyfirlýsing um aðgerðir í loftslagsmálum (pdf-skjal)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum