Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. maí 2017 Forsætisráðuneytið

Fundargerð 2. fundar Þjóðhagsráðs

Þjóðhagsráð kom saman til annars fundar 6. apríl sl. en hlutverk ráðsins er að greina stöðu efnahagsmála og ræða samhengi ríkisfjármála, peningastefnu og vinnumarkaðar í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni.

Í Þjóðhagsráði sitja forsætisráðherra, sem stýrir fundum ráðsins, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands. Heildarsamtök launafólks sem aðild eiga að rammasamkomulaginu hverju sinni geta gerst aðilar að Þjóðhagsráði.Í samkomulagi um hlutverk og umgjörð Þjóðhagsráðs segir að fundargerðir skuli birtast á vefjum aðila ráðsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum