Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. maí 2017 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Þjóðaröryggisráð kemur saman í fyrsta sinn

Þjóðaröryggisráð kom saman í fyrsta sinn í dag en lög um þjóðaröryggisráð voru samþykkt á þingi í september á síðasta ári. Ráðinu er ætlað að framfylgja þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland eins og hún er á hverjum tíma, að stefnan sé endurskoðuð reglulega og að viðeigandi samráð stjórnsýsluaðila innbyrðis og við Alþingi eigi sér farveg og fari reglulega fram. Með stofnun ráðsins er jafnframt stigið skref í þá átt að styrkja samhæfingu og, sé þjóðaröryggi ógna, að tryggja samræmd viðbrögð hlutaðeigandi viðbragðsaðila.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra: ,,Verkefni þjóðaröryggisráðs eru viðamikil og ég bind miklar vonir við störf þess. Við sjáum hér tækifæri til þess að skerpa boðleiðir, skilgreina verkaskiptingu enn betur og gera samstarfið enn skilvirkara. Þá blasir við að samvinna þjóðaröryggisráðs og almannavarna- og öryggismálaráðs er afskaplega mikilvæg, þar sem störf þeirar skarast í mörgum tilvikum.“

Í þjóðaröryggisráði sitja 11 fulltrúar. Forsætisráðherra er formaður ráðsins og stýrir fundum þess. Þá eiga þar sæti utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og ráðuneytisstjórar ráðuneytanna þriggja. Enn fremur eiga fast sæti í ráðinu tveir þingmenn, annar úr þingflokki sem skipar meirihluta á þingi en hinn er úr þingflokki minnihluta. Þá sitja í ráðinu forstjóri Landhelgisgæslunnar, Ríkislögreglustjóri og fulltrúi Landsbjargar.

Fundir þjóðaröryggisráðs verða haldnir eftir því sem þurfa þykir en eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Ráðið skal á hverju ári upplýsa Alþingi um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar og upplýsa utanríkismálanefnd þingsins um hver þau mál sem líkleg eru til að hafa áhrif á þjóðaröryggisstefnuna og framkvæmd hennar. Þá skal ráðið stuðla að endurskoðun þjóðaröryggisstefnunnar eigi sjaldnar en á 5 ára fresti. 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum