Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. maí 2017 Forsætisráðuneytið

Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins funda í Brussel

Þróun öryggismála, efling sameiginlegra varna og baráttan gegn hryðjuverkum voru meðal umræðuefna á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í Brussel í dag.

„Atlantshafsbandalagið er meginstoðin í samvinnu Evrópu og Norður-Ameríku en breyttar öryggishorfur kalla á virkari þátttöku og framlög allra bandalagsríkja. Ísland hefur verið að auka framlög til öryggis- og varnarmála m.a. með því að bæta gistiríkjastuðning í Keflavík og auka þátttöku í störfum bandalagsins. Voðaverkin í Manchester voru eðlilega ofarlega í hugum allra og settu mark sitt á umræðuna“, sagði Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra sem sótti fundinn. Leiðtogarnir áréttuðu fyrri skuldbindingar um að auka framlög til öryggis- og varnarmála á næstu árum til að mæta nýjum áskorunum og jafna byrðarnar af sameiginlegum vörnum bandalagsins. Aðgerðir til að stemma stigu við hryðjuverkum og auka stöðugleika í veikburða ríkjum voru einnig til umræðu. Leiðtogarnir samþykktu að bandalagið tæki virkari þátt í baráttunni gegn hryðjuverkum í nánu samstarfi við aðrar alþjóðastofnanir og samstarfsríki. Samhliða því verður stuðningur við umbætur í öryggis- og varnarmálum í samstarfsríkjum aukinn til að gera þeim betur kleift að standa vörð um eigið öryggi. 

Í tengslum við fund leiðtoganna afhentu belgísk stjórnvöld Atlantshafsbandalaginu nýjar höfuðstöðvar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum