Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. maí 2017 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherrar Norðurlandanna funda í Bergen

Forsætisráðherrar Norðurlandanna - mynd

Á fyrri degi sumarfundar forsætisráðherra Norðurlandanna sem haldinn er í Bergen 29. og 30 maí, var norræn samvinna rædd svo og ýmis alþjóða- og öryggismál. Mikilvægi baráttunnar gegn hryðjuverkum og öfgasamtökum var ofarlega í hugum forsætisráðherranna. Þá var komið inn á nýafstaðinn leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO), en þrjú Norðurlandanna eiga aðild að NATO. Samstarf Norðurlandanna og Kína var til umræðu svo og staða mála meðal annars í Rússlandi, Úkraínu og á Sýrlandi. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, leiddi umræðuna um svæðisbundið samstarf og beindi umræðunni aðallega að málefnum norðurslóða, Norðurskautsráðinu og Eystrasaltsráðinu. Ísland gegnir formennsku í Eystrasaltsráðinu um þessar mundir og verður ráðherrafundur haldinn í Reykjavík 20. júní nk. í tilefni af 25 ára afmæli ráðsins. Þá var rætt um samstarf Norðurlandanna á sviði umhverfis- og loftslagsmála og upplýsingatækni og ákveðið að stofna til sérstakrar ráðherranefndar um stafræna tækni. Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu var til umfjöllunar og sammæltust forsætisráðherrarnir um að eiga eins mikla samvinnu og kostur er í þeirri vinnu sem framundan er.

„Samráðsfundir sem þessir gegna nú enn meira hlutverki en áður, ekki síst í ljósi örra breytinga og þróunar í heimsmálum. Samstaða og samvinna Norðurlanda í veigamiklum málum gerir rödd okkar enn sterkari á alþjóðavettvangi“ segir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.

Forsætisráðherrarnir munu halda áfram umræðum í kvöld og á fundum þeirra á morgun 30. maí verða sérstaklega á dagskrá ýmis norræn málefni og norræn samvinna og meðal annars kynnt verkefnið „Norrænar lausnir á hnattrænum viðfangsefnum“. Þá munu forsætisráðherrarnir eiga fund með framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar og forseta Norðurlandaráðs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum