Hoppa yfir valmynd

Frétt

14. júní 2017 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Starfsemi og safnkostur Tónlistarsafns Íslands flutt til Þjóðminjasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns

Undirritn samnings um flutning Tónlistarsafns til Landsbókasafns og Þjóðminjasafns - mynd

Sú starfsemi sem hefur verið á vegum Tónlistarsafns Íslands í Kópavogi og safnkostur þess verða flutt til Þjóðminjasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á grundvelli samkomulags sem Kópavogsbær, söfnin og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér.

Auk þess sem safnkostur og verkefni Tónlistarsafnsins verða flutt til ofangreindra safna er í samkomulaginu fjallað um að þróun Ísmús, gagnagrunns um íslenskan tónlistar- og menningararf, verði haldið áfram í samvinnu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Söfnin hafa þegar efnt til samvinnu sín á milli, en við flutning starfsemi Tónlistarsafnsins til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er þess vænst að sameiningin geti orðið til að efla faglegt starf á þessu sviði enn frekar og þannig tryggt að varðveisla heimilda sem tengjast íslenskum tónlistararfi verði eins og best er á kosið.

Í samræmi við ákvæði safnalaga og stofnskrár Tónlistarsafns Íslands mun Þjóðminjasafn Íslands taka við þeim safnkosti Tónlistarsafnsins sem ekki er beint tengdur þeim verkefnum safnsins sem flytjast til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

Til að tryggja samfellu í starfseminni við þessar breytingar munu starfsmenn Tónlistarsafns Íslands vinna að þeirri yfirfærslu verkefna milli safna sem samkomulagið felur í sér.

Tónlistarsafn Íslands var stofnað af Kópavogsbæ árið 2006, en frá 2009 hefur starfsemi þess notið styrkja frá mennta- og menningarmálaráðuneyti á grundvelli samninga þar að lútandi.  Í kjölfar viðræðna sem Kópavogsbær óskaði eftir við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn auk mennta- og menningarmálaráðuneytis og Þjóðminjasafns, var niðurstaðan sú að mikil skörun væri í starfsemi Tónlistarsafnsins við þær skyldur sem Landsbókasafnið hefur við varðveislu tónlistararfsins og því gæti sameiningin orðið til að efla enn frekar faglegt starf á þessu sviði og varðveisla heimilda sem tengjast íslenskum tónlistararfi yrð heildstæðari en ella. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum