Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. júní 2017 Utanríkisráðuneytið

Kafbátaeftirlitsæfing við Ísland 23. júní - 6. júlí

Kafbátaeftirlitsæfing á vegum Atlantshafsbandalagsins verður haldin hér við land 23. júní til 6. júlí nk., en árin 2012-2016 hafa árlegar æfingar af þessu tagi verið haldnar undan ströndum Noregs. Æfingin, sem kallast Dynamic Mongoose 2017, fer fram suður af landinu. Níu ríki Atlantshafsbandalagsins, Bandaríkin, Noregur, Frakkland, Þýskaland, Bretland, Danmörk, Kanada, Pólland og Holland. taka þátt í æfingunni og leggja til fimm kafbáta, níu freigátur og eitt rannsóknarskip, auk 6-8 kafbátaleitarflugvéla og þyrla. Ríflega tvö þúsund manns mun taka þátt í æfingunni.

„Ísland er hluti af hinu breytta og flókna öryggisumhverfi sem við stöndum öll frammi fyrir. Þessi æfing er til marks um að sjónir bandamanna okkar beinast í auknum mæli að Norður-Atlantshafi og hún er því tímabær aðgerð til að styrkja eftirlit og greiningu á svæðinu,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Ísland leggur til aðstöðu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og Landhelgisgæsla Íslands tekur þátt í æfingunni, m.a. með stjórnstöð á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Varðskipið Týr, flugvél gæslunnar og þyrlur munu taka þátt í þeim hluta æfingarinnar sem tengjast hefðbundnum verkefnum stofnunarinnar. Stjórn æfingarinnar verður flutt frá flotastjórn Atlantshafsbandalagsins í Northwood í Bretlandi til öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli og verður það í fyrsta sinn sem þess konar æfingu er ekki stjórnað frá Northwood..

Í tengslum við veru herskipa Atlantshafsbandalagsins hér á landi verður efnt til sérstakrar minningarathafnar í tilefni af því að um þessar mundir eru 75 ár liðin frá því að skipalest bandamanna í síðari heimsstyrjöldinni. PQ17, sigldi til Kólaskaga í Rússlandi þegar stríðið á austurvígstöðvunum stóð sem hæst. Föstudaginn 23. júní munu herskip safnast saman á Faxaflóa og sigla í fylkingu inn Hvalförð og minnast þeirra sem létust í árásum þýskra herskipa og kafbáta á skipalestirnar, og þeirra sem lögðu líf sitt í hættu við að koma björgum til Rússlands í stríðinu. Varðskipið Týr fer fyrir skipalestinni.

„Það er viðeigandi að minnast sögu þessarar stærstu skipalestar bandamanna til Sovétríkjanna en hún lagði upp frá Hvalfirði í lok júní 1942. Á annað hundrað manns mætti örlögum sínum í Norður-Atlantshafi nokkrum dögum síðar en af 36 skipum komust aðeins 11 til hafnar,“ segir Guðlaugur Þór.

Helgina 23.-25. júní, svo og í lok æfingarinnar, munu nokkur skipanna sem taka þátt í kafbátaeftirlitsæfingunni leggjast að bryggju í Reykjavíkurhöfn. Þá verður, í samvinnu við Varðberg, boðað til ráðstefnu um öryggis- og varnarmál á norðanverðu Atlantshafi þann 23. júní.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum