Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. júní 2017 Utanríkisráðuneytið

Grænlendingum boðin aðstoð

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Suka K. Frederiksen, utanríkisráðherra Grænlands, ræddu fyrr í dag saman í síma vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem skall á byggðinni Nuugaatsiaq í Uummannaq-firðinum í nótt. Utanríkisráðherra vottaði grænlenska ráðherranum samúð sína vegna atburðarins og bauð fram aðstoð og stuðning íslenska ríkisins ef á þyrfti að halda. „Ég tjáði grænlenska utanríkisráðherranum að Ísland styddi Grænland og að við værum reiðubúin til að hjálpa og veita aðstoð eftir þörfum.“

Utanríkisráðherra Grænlands, sagði eftirfarandi eftir samtal ráðherranna. „Ég met mikils að starfsbróðir minn, utanríkisráðherra Íslands, skyldi hringja til mín í dag.  Það er mikilsvert að íslenska ríkisstjórnin og íslenska þjóðin hugsi til okkar og bjóði fram aðstoð sína, ef þörf verður fyrir slíkt. Það er gott til þess að vita að við höfum náin tengsl og vinasamband og það sýnir að gott samstarf við nágranna okkar er mikilvægt á erfiðum stundum,“ sagði Suka K. Frederiksen.

Frederiksen upplýsti einnig að á þessari stundu væru engar vísbendingar um að erlendir ríkisborgarar eða ferðamenn væru á þeim svæðum sem verst urðu úti. Tjáði hún utanríkisráðherra Íslands einnig að grænlenska ríkisstjórnin hefði verið upplýst um kveðjur og samhug ríkisstjórnar Íslands

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum