Hoppa yfir valmynd

Frétt

19. júní 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skýrsla um mat á framkvæmd og áhrifum Erasmus+ á Íslandi

Skýrslan er á ensku og er liður í mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á því hvernig tekist hefur til um framkvæmd styrkjaáætlunar ESB Erasmus+. Sambærilegar skýrslur voru gerðar í öllum ríkjum þar sem Erasmu+ áætlunin er starfrækt. Erasmus+ er mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun Evrópusambandsins og hófst 1. janúar 2014 og stendur yfir í sjö ár eða til ársins 2020. Samkvæmt reglum Erasmus+ áætlunarinnar er framkvæmdastjórn ESB ætlað að skila af sér matsskýrslu um Erasmus+ áætlunina til Evrópuþingsins, Ráðsins, Efnahags- og félagsmálanefndar ESB og Svæðanefndar ESB. Í tengslum við þetta mat eiga þátttökuríki Erasmus+ áætlunarinnar að gera hvert um sig landsskýrslu fyrir framkvæmdastjórn ESB. 
Landsskýrslunum er ætlað að veita upplýsingar um framkvæmd og áhrif áætlunarinnar á landsvísu og er ætlað að nýtast í skýrslu ESB, sem er meðal annars ætlað að vera meginheimild þegar vinna við gerð nýrrar áætlunar sem mun hefjast 2021.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið bar ábyrgð á vinnu við landsskýrsluna. Markmiðið var að meta framkvæmd, áhrif og árangur áætlunarinnar á landsvísu sem og að kanna viðhorf þátttakanda og hagsmunaaðila.

Evaluation of the Implementation and Impact of Erasmus+ in Iceland

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum