Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. júlí 2017 Innviðaráðuneytið

Hugsanlegar tafir við skimun farþega vegna aukinna flugverndarráðstafana

Flugstöð - myndHaraldur Jónasson / Hari

Bandarísk stjórnvöld hafa boðað breytingar á flugverndarráðstöfunum og munu aðgerðirnar hafa áhrif víða um heim. Í breytingunum felast auknar kröfur um flugvernd á þeim flugvelli sem er síðasti viðkomustaður fyrir flug til Bandaríkjanna. Kröfur um aukið öryggi munu m.a. koma fram í því að kannaður verður betur en áður rafbúnaður sem farþegar hafa meðferðis um borð í flugvélar.

Flugvalla- og flugrekendur hafa þrjár vikur til að bregðast við breyttum aðstæðum og má búast við einhverjum töfum í flugverndarskimun meðan á aðlögun stendur.

Áhrif þessara breyttu krafna kunna að verða einhver hér á landi, sérstaklega í ljósi þess að tilkynnt er um þær skömmu fyrir háannatíma flugumferðar um Keflavíkurflugvöll. Eru farþegar beðnir um að sýna þessu skilning en Isavia mun reyna að lágmarka tafir eftir fremsta megni.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hvetur fólk sem leið á til útlanda að hafa þetta í huga og gæta að því að mæta tímanlega fyrir brottför.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum