Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. september 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Viðurkenningar veittar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru

Frá afhendingu verðlaunanna í dag. F.v. Steinar Kaldal, aðstoðarmaður ráðherra, Ævar Þór Benediktsson, Sigþrúður Jónsdóttir og Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneyti. - mynd

Ævar Þór Benediktsson hlaut fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sigþrúður Jónsdóttir fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í dag. Verðlaunin voru veitt í tengslum við Dag íslenskrar náttúru, sem er á morgun.

Ævar Þór hlaut verðlaunin fyrir að hafa fjallað á fjölbreyttan, fræðandi og skemmtilegan hátt um umhverfið, náttúruna og náttúruvernd í sjónvarpsþáttum sínum Ævar vísindamaður og útvarpsþáttunum Vísindavarpið á Rás 1, veturinn 2016-2017. Segir í rökstuðningi dómnefndar að Ævar hafi með fjölbreyttum hætti vakið athygli ungra áhorfenda á umhverfismálum og náttúru á faglegan og vandaðan hátt. Þá hafi hann bent á ógnirnar sem steðja að umhverfi og náttúru en um leið fjallað um með hvaða hætti hægt sé að bæta ástand viðkvæmra vistkerfa og náttúrunnar. Honum hafi tekist að samtvinna umfjöllun um umhverfismál og skemmtilegt og lærdómsríkt afþreyingarefni fyrir börn og sé vel að þessari viðurkenningu kominn.  

Sigþrúður Jónsdóttir hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti fyrir áralanga baráttu sína fyrir verndun Þjórsárvera. Segir í rökstuðningi ráðherra að Sigþrúður hafi helgað líf sitt verndun svæðisins og unnið markvisst að vitundarvakningu um einstæða náttúru þess. Hún hafi verið meðal stofnenda Áhugahóps um verndun Þjórsárvera, haldið baráttufundi gegn virkjunum í Þjórsá, safnað undirskriftum gegn virkjunum og leiðsagt fjölmörgum hópum í gönguferðum um Þjórsárver. Hún hafi varið tíma, orku og fjármunum í baráttuna svo gengið hafi nærri henni og fjölskyldu hennar. Líkt og Sigríður í Brattholti hafi hún verið rekin áfram af einlægri hugsjón og sannfæringu um mikilvægi þess að umgangast landið og náttúruna af varkárni og virðingu.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar verðlaunahöfum öllum innilega til hamingju.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum