Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. október 2017 Innviðaráðuneytið

Bætt verði við ferðum í vetraráætlun Baldurs

Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur beint þeim tilmælum til Vegagerðarinnar að ferðum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs verði fjölgað í vetur í samræmi við óskir heimamanna á sunnanverðum Vestfjörðum. Jafnframt verður bætt við ferðum í flugáætlun milli Bíldudals og Reykjavíkur frá 1. febrúar á næsta ári. Er þetta gert til þess að bregðast við miklum vexti í atvinnulífinu á svæðinu og aukinnar þarfar fyrir almenningssamgöngur.

Frá því í lok júlí hefur samgönguráðherra haft til skoðunar að fjölga ferðum yfir Breiðafjörð. Fulltrúar bæjaryfirvalda Vesturbyggðar og atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum áttu síðan fund í september með fulltrúum Vegagerðarinnar og ráðuneytisins þar sem fram komu óskir heimamanna um að styrkja samgöngur við sunnanverða Vestfirði. Var þess óskað að ferðum Baldurs yrði fjölgað. Bætt yrði við morgunferð á föstudögum til að koma fiskafurðum á erlendan markað og bætt við ferð á þriðjudögum. Vegagerðinni hefur verið falið að ganga frá þessum breytingum.

Þá hefur verið óskað eftir að fjölgað verði ferðum í áætlunarflugi milli Bíldudals og Reykjavíkur þannig að morgun- og kvöldferðir verði fimm daga vikunnar í stað einnar ferðar á dag eins og nú er. Er flugfélagið Ernir reiðubúið að bæta við ferðum og hefja þær 1. febrúar næstkomandi. Myndi kostnaður verða kringum 8 milljónir króna fyrir sex mánaða tímabil. Er fjármögnun tryggð með fé sóknaráætlunar Vestfjarða með viðaukasamningi sem gerður er í samræmi við tillögur í Vestfjarðaskýrslu. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum