Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. október 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkur til verkefnis Pieta gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða

Þorsteinn Víglundsson ásamt Björk Jónsdóttur formanni Pieta Ísland og Sigríði Arnardóttur framkvæmdastjóra. - myndVelferðarráðuneytið

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, undirritaði í dag samning við Pieta Ísland um 24 milljóna króna rekstrarstyrk frá velferðarráðuneytinu til tveggja ára. Aðalmarkmið Pieta Ísland er að vinna gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða með ókeypis ráðgjöf.

Pieta Ísland undirbýr stofnun Pieta húss að írskri fyrirmynd þar sem allir sem eru í sjálfsvígshættu eða glíma við sjálfsskaðavanda og aðstandendur þeirra eiga greiðan aðgang að ókeypis ráðgjöf. Stefnt er að opnun hússins 1. desember næstkomandi að Baldursgötu 7 í Reykjavík.

Ein af forsendunum fyrir styrk velferðarráðuneytisins var að Pieta Ísland hefði náð samvinnu við fleiri styrktaraðila um fjármögnun og rekstur hússins. 

„Í mínum huga er enginn vafi um að það sé bæði rétt og skylt að styrkja þetta verkefni. Það er knýjandi þörf fyrir stuðning og aðstoð við fólk í þessum vanda, bæði einstaklingana sjálfa og þeirra nánustu - aðstoð sem er aðgengileg nær tafarlaust og veitt af sérfræðingum“ sagði Þorsteinn Víglundsson þegar hann og Sigríður Arnardóttir, framkvæmdastjóri Pieta Ísland, undirrituðu samninginn í dag.

Líkt og fram kemur í lýsingu verkefnisins sem gerð er grein fyrir í samningnum munu einstaklingar sem þurfa á aðstoð að halda, eiga kost á að fjá þjónustu innan 24 stunda frá því að leitað er eftir aðstoð. Boðið verður upp á 15 ókeypis viðtöl fyrir þá sem eru í sjálfsvígshugleiðingum og 5 ókeypis viðtöl fyrir aðstandendur og munu fagaðilar sjá um viðtölin. 

Pieta hús á höfuðborgarsvæðinu mun geta náð til 81 % landsmanna en stefnt er að opnun Pieta skjóls á landsbyggðinni í framtíðinni. Árangur af starfinu verður metinn reglulega í samvinnu við bakhóp sérfræðinga úr háskólaumhverfinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum