Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2017
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólarhring | kr. 26.200 |
2. Gisting í einn sólarhring | " 15.000 |
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag | " 11.200 |
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag | " 5.600 |
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2017. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2017 dags. 23. maí 2017.
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.
Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: stjornarradid.is/ferdakostnadur.
Reykjavík, 31. október 2017
Ferðakostnaðarnefnd