Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. nóvember 2017 Innviðaráðuneytið

Hækkun útgjaldajöfnunarframlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um hækkun útgjaldajöfnunarframlaga sjóðsins á árinu 2017 um 500 m.kr. Áætlað útgjaldajöfnunarframlag skv. A- hluta framlaganna nemur því 7.550 m.kr.

Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr.  en í lok ársins verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2017 umfram tekjur.

Uppgjör framlaganna fyrstu 10 mánuði ársins fer fram 13. nóvember næstkomandi.

Áætlun um heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga er því 8.300 m.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum