Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. nóvember 2017 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1007/2017 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember  2018. 

 

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.:

 

 

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01.-31.12.18

13.000

0

0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar.

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 föstudaginn 1. desember 2017.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum