Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. desember 2017 Dómsmálaráðuneytið

Ráðherra sótti þriðja fund ESB um internetið

Sigríður Á. Andersen var meðal þátttakenda í ráðherrafundi ESB um internetið. - mynd

Fundur fór fram á umræðuvettvangi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um internetið (EU Internet Forum) í Brussel í gær, miðvikudaginn 6. desember. Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, sótti fundinn sem var haldinn í þriðja sinn í ár.

Umræðuvettvangurinn var settur á laggirnar árið 2015 til samráðs fyrir ráðherra Evrópuríkjanna, Evrópulögregluna (Europol) og tæknifyrirtæki um varnir gegn notkun internetsins til hryðjverkastarfsemi og ofbeldisáróðurs.

Á fundinum var farið yfir þann árangur sem náðst hefur frá upphafi og verkefni sem framundan eru. Sérstaklega var fjallað um hvernig betur megi draga úr og sporna við skaðlegu efni tengdu hryðjuverkum sem birt er á netinu og hvernig einkaaðilar geti komið að þeirri vinnu. Auk ráðherra Evrópuríkjanna sátu fundinn forstöðumenn nokkurra stærstu samfélagmiðlanna og lýstu þeir meðal annars örri tækniþróun sem nýtist vel í baráttunni gegn ofbeldisáróðri á netinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum