Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. janúar 2018 Dómsmálaráðuneytið

31 sótti um dómaraembætti við Héraðsdóm Reykjavíkur

Alls sótti 31 um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem auglýst var laust til umsóknar 17. nóvember síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út 11. desember.

Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 24. janúar 2018 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.  

Umsækjendur eru:

  1. Arnaldur Hjartarson, aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn
  2. Auður Björg Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður
  3. Ásgeir Jónsson, hæstaréttarlögmaður
  4. Ásgerður Ragnarsdóttir, hæstaréttarlögmaður
  5. Bergþóra Ingólfsdóttir, hæstaréttarlögmaður
  6. Bjarni Lárusson, hæstaréttarlögmaður
  7. Bjarnveig Eiríksdóttir, héraðsdómslögmaður
  8. Brynjólfur Hjartarson, lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
  9. Daði Kristjánsson, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara
  10. Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
  11. Guðmundína Ragnarsdóttir, héraðsdómslögmaður
  12. Guðmundur Örn Guðmundsson, héraðsdómslögmaður
  13. Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
  14. Helgi Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
  15. Hrannar Hafberg, ráðgjafi Fiskistofu
  16. Indriði Þorkelsson, hæstaréttarlögmaður
  17. Ingiríður Lúðvíksdóttir, settur héraðsdómari
  18. Jón Þór Ólason, héraðsdómslögmaður og lektor við Háskóla Íslands
  19. Jónas Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
  20. Nanna Magnadóttir, forstöðumaður úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál
  21. Ólafur Freyr Frímannsson, héraðsdómslögmaður
  22. Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands
  23. Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir, héraðsdómslögmaður og lektor við Háskólann á Akureyri
  24. Sigurður Jónsson, hæstaréttarlögmaður
  25. Sonja María Hreiðarsdóttir, lögmaður hjá embætti borgarlögmanns
  26. Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
  27. Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir, saksóknari hjá embæti ríkissaksóknara
  28. Stefán Erlendsson, héraðsdómslögmaður
  29. Valborg Steingrímsdóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
  30. Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður héraðsdómara
  31. Þórir Örn Árnason, héraðsdómslögmaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum