Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. janúar 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kynningarfundur um þróunarsjóð innflytjendamála 12. janúar

Innflytjendaráð stendur fyrir opnum kynningarfundi 12. janúar sem ætlaður er þeim sem hyggjast sækja um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála sem auglýstir hafa verið lausir til umsóknar. Fundurinn verður haldinn á Nauthól og stendur frá kl. 9 - 11. Fjallað verður um umsóknarferlið, áherslur styrkveitinga að þessu sinni og um reglur sjóðsins. 

Aðgangur að fundinum er opinn og ókeypis og þátttakendum er boðið upp á morgunverð. Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru beðnir um að senda staðfestingu þess efnis í tölvupósti til Hilmu á netfangið: [email protected]

Dagskrá fundar:

9:00 Tatjana Latinovic, formaður innflytjendaráðs og fundarstjóri opnar fundinn

9:15 Kynning á áherslum þróunarsjóðsins fyrir árið í ár.

9:30 Samtök um móðurmál kynna verkefni sem styrkt var árið 2016.

  • Brýr á milli kennara nemenda með annað móðurmál en íslensku - fræðsla um móðurmálskennslu

10:00 Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, starfsmaður innflytjendaráðs fer yfir reglur þróunarsjóðs innflytjenda og umsóknarferlið.

10:20 Umræður

11:00 Fundi slitið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum