Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. febrúar 2018 Forsætisráðuneytið

Jafnréttissjóður Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki

Jafnréttissjóður Íslands - mynd

Í velferðarráðuneytinu er starfræktur Jafnréttissjóður Íslands sem stofnaður var á grundvelli þingsályktunar nr. 13/144 sem samþykkt var í tilefni 100 ára kosningaréttarafmælis íslenskra kvenna. Megintilgangur Jafnréttissjóðs Íslands er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem efla eiga jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.

Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 milljónir króna á ári, frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020. Stjórn sjóðsins ákveður fjölda styrkja og gerir tillögu til félags- og jafnréttismálaráðherra um veitingu þeirra hverju sinni. Úthlutað er úr sjóðnum við formlega athöfn 19. júní ár hvert.  

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2018. Gerðar eru skýrar faglegar kröfur til umsækjenda. Niðurstöður verkefna og rannsókna verða gerðar aðgengilegar á vefsvæði Stjórnarráðs Íslands í þeim tilgangi að þær nýtist sem best til framfara á sviði jafnréttismála.

Við úthlutun úr sjóðnum leggur stjórn hans áherslu á að veita fé til verkefna sem:

    a.    eru til þess fallin að vinna gegn launamun kynjanna og efla almennt jafnrétti þeirra á vinnumarkaði og í atvinnulífinu,
    b.    varpa ljósi á samfélagslegan, um­hverfislegan og efnahagslegan ávinning af auknu jafnrétti og styrkja jafnrétti á alþjóðavísu, t.d. með kynningu á íslenskum lausnum og áherslu á bætta stöðu kvenna í þróunarlöndum og á norðurslóðum,
    c.     ætlað er að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi,
    d.     falla undir þróunarverkefni í skólakerfinu sem ætlað er að stuðla að sterkri og jákvæðri sjálfsmynd pilta og stúlkna, svo sem með aukinni fræðslu í kynjafræðum,
    e.      eru til þess fallin að hvetja ungt fólk af báðum kynjum til aukinnar samfélagsþátttöku og stjórnmálastarfs og stuðla að aukinni kosningaþátttöku þess,
    f.      eru til þess fallin að varpa ljósi á stöðu kynjanna jafnt í samtíð sem fortíð.

Við ákvörðun um styrkhæfi umsókna leggur stjórnin m.a. mat á gæði verkefnis eða rannsóknar, þ.m.t. markmið og skipulag verkefnis, hagnýtingargildi og mikilvægi með tilliti til reglna og markmiða sjóðsins um að auka jafnrétti kynjanna.

Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 22. mars 2018 kl. 16.00.

Vakin er athygli á því að einungis er unnt að sækja um rafrænt á eyðublaðavef ráðuneytanna á  minarsidur.stjr.is. Nánari upplýsingar má finna á vefsvæði ráðuneytisins. 

Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 965/2016, um úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Íslands. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum