Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. febrúar 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins

Frá athöfninni í fyrra en þá voru nemendur í Ártúnsskóla og Lýsuhólsskóla, Grunnskóla Snæfellsbæjar, útnefndir Varðliðar umhverfisins.  - mynd

Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Um er að ræða verkefnasamkeppninni fyrir nemendur í 5. - 10 bekk grunnskóla en að henni standa umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur.

Skilafrestur verkefna er til 9. apríl 2018 og skal senda þau á netfangið [email protected] eða í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins.

Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingar, myndbönd og hljóðverk. Í stuttu máli er frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.

Samkeppnin er kjörið tækifæri fyrir nemendur og kennara að koma á framfæri verkefnum sem þeir fyrrnefndu hafa þegar unnið í skólanum því ekki er skilyrði að verkefnin séu sérstaklega unnin fyrir samkeppnina.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, útnefnir Varðliða umhverfisins við hátíðlega athöfn á Degi umhverfisins 25. apríl en auk þess fá varðliðarnir glaðning í formi upplifunar af einhverju tagi í samráði við skóla þeirra. Allir þátttakendur í samkeppninni fá viðurkenningarskjal.

Nánari upplýsingar um keppnina 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum