Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. mars 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjárfestingarbanki Evrópu eykur lánsframboð sitt til EFTA ríkjanna

Bjarni Benediktsson og Andrew McDowell við undirritunina í dag. - mynd

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Andrew McDowell, aðstoðarframkvæmdastjóri Evrópska fjárfestingarbankans undirrituðu í dag yfirlýsingu í tengslum við framlengingu og aukningu á framboði lána til fjögurra ára í viðbót, en aukningin nemur 200 milljónum evra frá því sem verið hefur og heildarframboðið því 1 milljarður evra til loka ársins 2021. Lánsféð stendur fyrirtækjum í öllum fjórum EFTA-ríkjunum til boða.

EIB er fjárfestingarbanki í eigu allra 28 ríkja Evrópusambandsins og vinnur hann náið með öðrum stofnunum sambandsins að því að innleiða stefnu þess. Aðaláherslan í starfi bankans er að styðja við efnahagsþróun og samruna Evrópu. Bankinn er stærsti fjölþjóðalántakandi og lánveitandi í heimi. með um 573 milljarða evra efnahag. EIB fjármagnar verkefni aðallega með lánveitingum til lengri tíma, en einnig í formi hlutafjár og ábyrgða. Megnið af útlánum bankans er veitt til verkefna innan Evrópusambandsins og telja þau yfir 90% af lánasafni hans. EIB hefur lánað rúmlega einn milljarð evra til verkefna á Íslandi frá árinu 1995.

Stjórn EIB ákvað að auka lánsféð þar eð vaxandi áhugi var á slíkum lánum og lánaviðskiptin hafa aukist. Andrew McDowell er aðstoðarframkvæmdastjóri og hefur umsjón með viðskiptum við EFTA-ríkin. Hann tilkynnti þessa ákvörðun eftir fund sinn með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í morgun.

Við það tækifæri sagði Bjarni: „Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að Isavia og önnur íslensk fyrirtæki geta á ný fengið aðgang að lánum fyrir mikilvægum innviðafjárfestingum án ábyrgðar ríkisins eða Reykjavíkurborgar frá fjölþjóðafjárfestingarbanka á stærð við EIB, enda getur bankinn boðið ein bestu lánskjör í Evrópu. Þetta er enn ein birtingarmynd þess að íslenskt hagkerfi stendur vel í alþjóðlegum samanburði.“

McDowell sagði við þetta tækifæri að EIB hefði sett loftslagsmál í forgang og fjármagnað margar framkvæmdir í endurnýjanlegri orku með lánum til EFTA-ríkjanna. „Ísland er framarlega í þróun jarðvarmaorku og EIB hefur gegnum árin tekið þátt í að fjármagna um 600 megavött af raforku í landinu. Nú er einum milljarði evra bætt við lán bankans á næstu fjórum árum og er bankinn reiðubúinn að fjármagna framkvæmdir til að stuðla að frekari efnahagssamruna milli ESB og EFTA“.

Sendiherra ESB á Íslandi, Michael Mann, sagði ennfremur: „Þetta er gott fjármögnunartækifæri fyrir EFTA-ríkin og undirstrikar að ríkin eru nánustu viðskiptaaðilar ESB og eru samtvinnuð við framvindu ESB ríkjanna gegnum EES samninginn og aðra tvíhliða samninga. Samvinna okkar er ekki aðeins á efnahagssviðinu heldur er hún einnig pólitísk og menningarleg og er til gagnkvæmra hagsbóta fyrir alla. Við sjáum fram á að bönd okkar styrkist í framtíðinni“.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum