Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. mars 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Sprotasjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2018 - 2019. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir: 

Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni: 

  • Menntun fyrir alla 
  • Verklegt nám 
  • Vellíðan 

Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind, að raunhæfar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint. 

Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf. 

Fyrir skólaárið 2018 - 2019 verða til úthlutunar allt að 54 milljónum kr. 

Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is
Tekið verður á móti umsóknum frá 10. til 31. mars 2018.

Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460-8904 eða í tölvupósti á  [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum