Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. mars 2018 Forsætisráðuneytið

Áfram veginn

Þegar Stígamót voru stofnuð á þessum degi fyrir 28 árum síðan þótti mörgum að þar væru á ferðinni öfgafull samtök. Konur sem lýstu reynslu sinni af kynferðislegu ofbeldi voru sífellt dregnar í efa. Og börn sem sögðu frá áttu sjaldnast von á að vera tekin alvarlega. Viðhorf samfélagsins var iðulega að þolendurnir væru að segja ósatt eða hefðu misskilið eigin upplifun frekar en að gróft heimilisofbeldi væri nánast daglegt brauð á litla Íslandi.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og á alþjóðlegum baráttudegi kvenna er við hæfi að líta um öxl og þakka öllu því baráttufólki sem hefur hálpað okkur að þokast áfram. En við þurfum líka að staldra við og greina „öfgafólk“ samtímans. Hvaða raddir eru það sem við viljum frekar þagga en hlusta á, af því að þær fara með óþægilegan sannleik?

#metoo bylgjan hefur afhjúpað áreitni og ofbeldi sem hefur viðgengist alltof lengi og í öllum kimum íslensks samfélags. Haft var eftir Cynthiu Enloe, sem flutti fyrirlestur við Háskóla Íslands á dögunum, að fyrirsjáanlegt bakslag við #metoo umræðunni væri ákall um að gera þyrfti greinarmun á frásögnum kvenna. Áreitni væri ekki það sama og nauðgun og lélegur karlrembubrandari ekki það sama og áreitni og svo framvegis. Enloe varaði við þessu og sagði að nú væri ekki tími til að greina á milli heldur til að tengja saman. Því #metoo sögurnar eru ekki aðskildar sögur um einstaka einstakling sem fer yfir mörk annarra. Þetta er samhangandi frásögn um menningu sem þarf að uppræta fyrir fullt og allt. Og til þess þarf að skilja samhengið.

Á dögunum skipaði ég stýrihóp, undir forystu Höllu Gunnarsdóttur ráðgjafa míns í málaflokknum, sem er ætlað að hrinda í framkvæmd löngu tímabærum úrbótum er varðar kynferðislegt ofbeldi. Hópnum er meðal annars gert að vinna að heildarendurskoðun á forvörnum og fræðslu, móta stefnu gegn stafrænu kynferðisofbeldi, útfæra hugmyndir um styrkari stöðu brotaþola og gera tillögur um samræmd viðbrögð stjórnvalda við #metoo. Sérstaklega skal hópurinn líta til þeirrar margþættu mismununar sem konur af erlendum uppruna, konur sem ekki búa við efnahagslegt öryggi, fatlaðar konur og hinsegin konur verða fyrir.

Þessi nefndarskipan kann að láta lítið yfir sér en verkefnið er ærið. Því við vanda af þessari stærðargráðu er engin ein töfralausn eða lagabreyting eða aðgerðaáætlun. Hér þarf að taka bæði stór og smá skref. Það er mín von að þegar þessu kjörtímabili lýkur hafi okkur miðað áfram. Til að mynda verði fullgildingu Istanbúl samningins að fullu lokið, árangur af auknu fjárframlagi til málaflokksins – og pólitískri áherslu á hann – verði augljós og að gerðar hafi verið lagabreytingar til að styrkja stöðu brotaþola kynferðisofbeldis. Þá hafi okkur tekist að nýta #metoo til að breyta um stefnu; til að skilja betur hvað það er í menningunni okkar og samfélagi sem ýtir undir og viðheldur kynferðislegri og kynbundinni áreitni.

Stjórnvöld geta aldrei breytt menningu ein og sér, en þau geta troðið slóðann og stutt við bakið á því baráttufólki sem hefur hjálpað okkur að sjá það sem við vildum ekki sjá. Gleðilegan alþjóðlegan baráttudag kvenna!

Katrín Jakobsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum