Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. mars 2018 Forsætisráðuneytið

Yfirlit úr dagskrám ráðherra

   - myndCurtis MacNewton/Unsplash

Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að allir ráðherrar ríkisstjórnar birti yfirlit úr dagbókum sínum frá og með deginum í dag. Við undirbúning málsins var leitað fyrirmynda einkum á Norðurlöndum og í Bretlandi.

Það er háð mati hvers og eins ráðherra hversu miklar upplýsingar verða birtar um dagskrá hverrar viku. Stiklað verður á stóru í dagskrá ráðherra en að meginstefnu er gert ráð fyrir að upplýsingar birtist um eftirfarandi: 

  • Formlega fundi sem boðað er til með dagskrá eða þar sem ráðherra tekur á móti fulltrúum félagasamtaka og stofnana
  • Formlega hádegisverði
  • Viðburði þar sem ráðherra heldur erindi eða ávarp
  • Fundi með fulltrúum erlendra ríkja (áður ótaldir)
  • Stærri viðtöl við fjölmiðla sem ákveðin eru með nokkrum fyrirvara

Dagbækurnar má finna á undirsíðu undir hverjum og einum ráðherra á vef Stjórnarráðsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum