Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. mars 2018 Forsætisráðuneytið

Hlutföll kynja í nefndum velferðarráðuneytisins

Velferðarráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum sem skipaðar eru á vegum ráðherra velferðarráðuneytisins, líkt og skylt er samkvæmt jafnréttislögum. Hlutfall kvenna var 60,7% og karla 39,3% í nefndum ráðuneytisins sem skipaðar voru á síðasta ári. 

Í 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum hins opinbera. Samkvæmt lögunum skal hlutur kynjanna vera sem jafnastur og hluti hvors kyns ekki minni en 40% þegar fulltrúar í nefnd eru fleiri en þrír. 

Ef hlutföll kynjanna í nefndum velferðarráðuneytisins eru skoðuð eftir tilnefningum hvors ráðherra um sig eru hlutföllin utan lögbundinna marka í nefndum félags- og jafnréttismálaráðherra, 38% karlar á móti 62% kvenna en innan marka í nefndum heilbrigðisráðherra, 41% karlar á móti 59% kvenna. 

Á töflunni hér að neðan má sjá hlutföll kynja í nefndum sem skipaðar hafa verið af hálfu ráðherra velferðarráðuneytisins á árunum 2011 – 2017. 

Samtals fjöldi í nýjum nefndum

Ár Konur Karlar Heild Hlutfall
kvenna
Hlutfall
karla
2011 137 136 273 50,2% 49,8%
2012 104 97 201 51,7% 48,3%
2013 141 124 265 53,2% 46,8%
2014 162 145 307 52,8% 47,2%
2015 96 92 188 51,1% 48,9%
2016 109 94 203 53,7% 46,3%
2017 99 64 163 60,7% 39,3%

Samtals fjöldi fulltrúa

Ár Konur Karlar Heild Hlutfall
kvenna
Hlutfall
karla
2011 405 379 784 51,7% 48,3%
2012 419 391 810 51,7% 48,3%
2013 421 401 822 51,2% 48,8%
2014 471 426 897 52,5% 47,5%
2015 492 439 931 52,8% 47,2%
2016 444 391 835 53,2% 46,8%
2017 386 301 687 56,2% 43,8%
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum